Don't hate the player hate the game

30.01.2007 21:46:55 / Kiddi

Þetta er nú bara bull og vitleysa

Neineineineineineineineineineinei..............

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 16:54:55 / elvar

Snillingur!!!

Þessi maður heitir Brynjar og spilar vinstra horn í Víking/Fjölni. Þetta er kannski ástæðan fyrir því að Kiddi og félagar eru í 2.deild.

http://www.youtube.com/watch?v=KM1UxP-xP44


» 20 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 21:43:13 / Kiddi

Endurkoma #2

Endurkoma... Veit ekki sjáum til hvað við endumst lengi. En það helsta hjá mér er kannski að ég ákvað ekki að fara í skóla í vetur heldur skellti mér á vinnumarkaðinn, djúpu laugina. Var kominn með námsleiða af háu stigi og eftir að hafa ráðfært mig við Kára Pálsson nemandaráðgjafa ákvað ég að taka mér allavegana eitt ár frí og er ég bara mjög sáttur með þá ákvörðun. Er að vinna hjá Eskimos og já nei þetta er ekki ESKIMO módelskrifstofan, nenni eiginlega ekki að útskýra þetta þar sem ég þarf að gera það í hvert skipti sem einhver spyr mig "við hvað vinnurðu". En áhugasamir endilega skoðið www.eskimos.is heimasíðuna okkar.
Er líka búinn að skipta um félag eftir endalaust einelti af hálfu Elvars gat ég hreinlega ekki lengur "meikað" annan vetur með honum. Pissaði á mig í sturtunni og setti hitakrem í nærbuxurnar mínar, þetta eru bara fá dæmi af mörgum. Er ennþá að jafna mig og hitti sálfræðinginn minn tvisvar í viku til að ræða þetta. Annars líkar mér bara vel í Víking fínir strákar og góður þjálfari.  Næst á dagskrá er svo að fara læra köfun er búinn að plata Rúnar í þetta og svo verður Hebbi með okkur. Gæti verið gaman svo í framhaldinu að fara út og kafa í einhverju kóralrifi. Þeir sem vilja skella sér með endilega verið í sambandi. Annars fór ég líka í semi eurotrip í sumar en það er allt önnur saga...Held að þetta sé komið nóg í bili

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 22:39:42 / elvar

Endurkoma leikmanna í bloggheiminn...

    Á leikmannafundi um helgina var ákveðið að endurvekja leikmenn, mörgum til mikillar gleði. Málið var tekið, rætt 3 umræður með þingrofi á milli, og loks skrifaði Þórir forseti undir.
    Allavega,... Þá hefur orðið mikil breyting hjá manni síðan í gamla góða MR. Ég fór í lögfræði í skóla fallega og fræga fólksins og kann mjög vel við mig þar. Mjög stíft, mikið að gera og er á kafi í miðannarprófunum. Það gengur vel í handboltanum, þrátt fyrir skot á mig undanfarna daga um að ég hafi eytt fullmiklum tíma á bekknum til þess að geta talað um að það gangi vel, en þá gengur vel.
    Þetta er svona það helsta sem að gengur á í mínu lífi þessa stundina og nú sendi ég boltann yfir á kickerinn til þess að koma með útdrátt úr sínu lífi...



» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 16:56:21 / elvar

Að deyja úr leiðindum......

Ég sit hérna og er að reyna halda mér við bækurnar, en það er virkilega erfitt því að ég er að fara í munnlega ensku á mánudag og smásögurnar og ljóðin eru svo leiðinleg að það er virkilega mannskemmandi. En þetta fer að klárast. Annars fékk ég símhringingu áðan frá Framsókn í Reykjavík til þess að kanna hvort ég væri búinn að ákveða hvaða flokk ég ætlaði að kjósa. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem fólk hringir svona og vill vita hvaða flokk ég ætla að kjósa því í síðustu viku var hringt í mig 4 sinnum og alltaf sagt í byrjun að nafn mitt hefði komið upp í handahófskenndu úrtaki og ég var beðinn um að svara spurningum. Er þetta úrtak svona lítið eða er alltaf verið að hringja í sama fólkið? Ég er að verða brjálaður á þessu... Hvernig í fjandanum getur maður forðast þessar símhringingar?

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 21:24:10 / Kiddi

evróvisjón

Piff.... þegar menn geta verið 1.50 og staðið uppi á píanói í hlýrabol og komist áfram þá er þessi keppni alveg búin að missa það, ekki það að hún hafi nú ekki löngu verið búin af því. Hefði verið skemmtilegra ef hún hefði komist áfram upp á laugardaginn að gera en fólk var bara ekki alveg að taka í þetta. Ég vil Palla aftur í þetta, hann er maðurinn eða eitthvað þannig..


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 14:02:54 / leikmenn

Niðurskurður í leikmannahópnum

Ungur piltur fannst látinn eftir að hafa keyrt fram af gullinbrúnni. Af þessu stigi er ekki vitað um hvort að sjálfsmorð hafi verið að ræða. En hann hafði víst tekið munnlega íslensku fyrr um daginn og var á leiðinni heim þegar slysið varð. Minningarathöfn verður klukkan 4 í árbæjarkirkuju. © mbl.is/Árvakur hf, 200

» 12 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 12:32:15 / elvar

UUSSS

HANDBOLTI  ::  11. maí. 2006 15:41
2.flokkurinn Reykjavíkur-,Deildar og Íslandsmeistari tímabilið 2005-06
Í dag varð 2.fl karla Reykjavíkurmeistari en riðillinn var spilaður í haust og því ljóst að Valur er þrefaldur meistari, Reykjavíkur-, Deildar og Íslandsmeistari. Glæsilegur árangur og til hamingju strákar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 23:44:42 / elvar

Íslandsmeistarar í 2.flokki 2006 í annað skipti í röð

Ég vil kveða mér hljóðs og segja nokkur vel valin orð af þessu tilefni.....

VIÐ ERUM MEISTARAR, VIÐ ERUM MEISTARAR, VIÐ ERUM ÍSLANDS ÍSLANDSMEISTARAR, VIÐ ERUM MEISTARAR VIÐ ERUM MEISTARAR VIÐ ERUM ÍSLANDS, ÍSLANDSMEISTARAR

Já og ég vil þakka þeim sem að komu og studdu okkur,

Góðar stundir....

Íslandsmeistararnir


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 17:49:10 / elvar

Ég er gjörsamlega orðlaus....

Þetta getur ekki hafa náð miklum vinsældum.....

http://video.google.com/videoplay?docid=-8610362188397291938&pl=true

Já ég vil þakka Hönnu Sigrúnu Sumarliðadóttur fyrir að benda mér á þetta videó....


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 12:08:45 / Kiddi

Áfram Valur

Jæja á morgun er komið af því, stóra stundin. Það sem allir hafa verið að bíða eftir ;). Við í 2.flokki Vals erum komnir í úrslit í Íslandsmótinu og eigum titil að verja frá því í fyrra. Þetta gæti orðið í fyrsta skipti sem annar flokkur Vals vinnur Íslandsmeistaratitilinn tvö ár í röð. Við kæmust því í sögubækurnar :) Vals-lega séð allavegana. Ekki viss um að Helgi Ingólfs færi að bæta þessu inn í námsefnið sitt maður veit samt aldrei, við höfum nú alltaf verið góðir félagar. En þeir sem eru komnir með leið á því að læra undir prófinu eða hafa bara einfaldlega ekkert betra að gera þá mæli ég endilega með því að þið mætið á sunnudaginn, 30.apríl í Austurbergi kl. 17:00 og styðjið okkur til sigurs... Já kannski fínt að bæta því inn líka að við erum að fara spila við Hauka.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 12:11:38 / elvar

Ferðasaga frá Tékklandsfara

Ég fór með U-20 ára landsliðinu að keppa í Tékklandi yfir Páskahelgina. Mótið var undankeppni fyrir EM og var haldið í litlum bæ sem heitir Jicín eða eitthvað álíka. Okkur gekk ekki alveg nógu vel og komumst ekki áfram. Fín ferð samt, náði að læra slatta og gaman að koma til Tékklands.

En í þessari ferð afrekaði ég nokkuð ásamt nokkrum öðrum leikmönnum; Ég festist í lyftunni á hótelinu vegna þess að við tróðum okkur 5 saman í lyftu sem 3 máttu vera í og hámarksþyngd var 240 kg. Samanlögð þyngd okkar var því 450 kg. Þetta endaði með því að lyftan festist á 6 hæð og við þurftum að eyða 25 mín í mjög vafasamri lyftu í A-Evrópu, þangað til að okkur var bjargað. Frammarinn Gunnar Harðarson tróð sér síðastur inn og því kenni ég honum alfarið um þetta. En.... Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég festist í lyftu í A-Evrópu því að ég festist líka í lyftu vegna yfirþyngdar í Serbíu-Svartfjallalandi þarsíðasta sumar. Það var eiginlega verra því að þá vorum við tæpir á lofti því það var ekki loftop á þeirri lyftu.Það hótel, Hótel Júgoslavia, hafði verið sprengt nokkrum áður og það vantaði helminginn á það. Og það var einmitt Gunnar nokkur Harðarson sem tróð sér einmitt líka inn í lyftuna þá með þessum afleiðingum.

Ég er búinn að sverja þess eið að fara aldrei aftur með Gunnari í lyftu. Ef einhver annar hefur lent í álíka hrellingum í látið mig endilega vita....   


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 22:20:40 / leikmenn

Kynferðisleg boð draga úr getu karla til að taka ákvarðanir

Nú hefur verið vísindalega sannað að karlmenn verða ruglaðir í ríminu þegar þeir sjá fallegar konur og geta ekki tekið ákvarðanir. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sem belgískir vísindamenn gerðu. Því meira testósterón sem er í körlunum, því óákveðnari verða þeir. Rannsóknin var gerð með þeim hætti að körlum sem voru að hefja kaupsýsluleik voru sýndar myndir af kynþokkafullum konum og undirfötum. Í ljós kom að þeir stóðu sig verr í leiknum en karlar sem ekki höfðu séð slíkar myndir áður en leikurinn hófst. Rannsóknin var gerð við Háskólann í Leuven. 176 gagnkynhneigðir karlmenn á aldrinum 18 til 28 ára tóku þátt í henni. Niðurstöðurnar eru birtar í The Proceedings of the Royal Society, og greint er frá þessu á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Þegar kaupsýsluleikurinn hófst kom í ljós að mönnunum sem höfðu fengið að sjá „æsandi“ myndir hætti fremur til að taka slæmum tilboðum. Testósterónmagn í mönnunum var einnig tekið með í reikninginn (með því að bera saman baugfingur og vísifingur - sé sá fyrrnefndi lengri bendir það til mikils testósteróns) og í ljós kom að þeir sem höfðu mest af testósteróni stóðu sig verst í leiknum, og þykir þetta benda til að þeir sem hafa mikið testósterón séu sérstaklega næmir fyrir kynferðislegum myndum. Dr Siegfried DeWitte, einn höfunda rannsóknarinnar, sagði: „Við teljum okkur allir vera skynsama menn, en niðurstöðurnar benda til þess að þeir sem hafa mikið af testósteróni séu einkar viðkvæmir fyrir kynferðislegum boðum.“ Belgísku vísindamennirnir eru að vinna að svipuðum rannsóknum á konum, en enn sem komið er hafa þeir ekki fundið neinar vísbendingar um sjónræn áreiti er hafi áhrif á hegðun þeirra............................Þetta skýrir svo margt. Væri líka mjög gott ef þið stelpurnar gætuð kannski klæðst efnismiklum flíkum og jafnvel verið með poka á hausnum svona til þess að trufla ekki okkur strákanna í prófunum. Með fyrirfram þökk :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 14:34:41 / Kiddi

Heimir Pálsson

Þetta er bara svona ef þið vilduð kannski bjalla í kauða og þakka honum fyrir bækurnar tvær sem hann gaf út. ÉG er búinn af því, frekar hress kall. Heimir Pálsson dósent við KHÍ. Sævarlandi 6, 108 Reykjavík. Heimasími 581 1321 &emdash; Vinnusími 563 3942. Póstfang heimpal@khi.is

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 15:37:35 / Kiddi

Gangaslagurinn

Video komið inn af 6.bekkingum gera sig tilbúna fyrir gangaslaginn. Mikið af OLíU, ggrrr Rúnar.

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4